|
|
24.10.2006 21:57:44 / saerun
Vá það er
rosalega langt síðan ég bloggaði síðast. Man varla hvernig þetta
virkar. En allavega, þar sem ég er komin með nýju tölvuna mína í
hendur er von til þess að ég hriti niður einhverjar pælingar hér
á næstunni. En nýja tölvan, hún er snilld - er bókstaflega allt
í þessu kvikindi.
En ég ætla samt ekki að hafa þetta lengra í bili. Maður verður að
fá aðlögun, þýðir ekki bara að demba sér í langan pistil strax á
degi 1 eftir upprisu.
En kem samt
fljótlega aftur, margt sem mér liggur á hjarta. Er með eina
snilldarsögu sem tengist einni vinkonu minni (jú alveg rétt, Beggu)
– og einum karli….ekki Hreiðarssyni samt. 
»
21.04.2006 08:25:14 / saerun
Hey alíúpa.
Jæja – páskarnir búnir og stelpan komin heim frá
Tékklandi. Brá mér til Prag sem sjúkraþjálfari hjá
unglingalandsliði kvenna í handbolta. Var snilldarferð alveg.
Stelpunum gekk súper vel, spiluðu tvo landsleiki við Tékka – töpuðu
reyndar fyrri leiknum (flugþreytan sat í þeim) en unnu þann seinni
með stæl. Svo tóku þær þátt í einu móti, reyndar félagsliðamóti, en
spiluðu ár uppfyrir sig. Náðu bronsinu en 62 lið tóku þátt og þykir
þetta eitt sterkasta mót í Evrópu. Þannig að þetta var brilliant
hjá þeim. Sjúkraþjálfarinn þeirra í lykilhlutverki og þótti standa
sig með eindæmum vel. Þetta eru miklar prímadonnur þannig að það
var nóg að gera, sem er gott – manni leiddist þá ekki á meðan. En
Prag er alveg geggjuð borg, mér finnst hún æði. Langar að fara
aftur þangað bráðlega og túristast. Svo á heimleiðinni lentum við í
London um hádegi og áttum ekki flug heim fyrr en um kvöldið. Þannig
að við nýttum tímann og fórum down town. Þar fékk visakortið aðeins
að hitna, sérstaklega í Niketown.
Jæja, best að fara að gera eitthvað. Tjá
tjá!
»
12.03.2006 20:45:37 / saerun
Vísindaferð á
föstudaginn, í Landsbankann. Var mjög gaman og vel veitt,
sem er náttúrulega fyrir öllu. Þar vorum við
sjúkraþjálfunarnemar ásamt guðfræðinemum, sagnfræðinemum og held
ég spænskunemum eða eitthvað úr HÍ. Þetta var eiginlega mjög
fyndin samsetning, skondið hvernig ákveðnar týpur veljast í
ákveðnar deildir. Við sportistarnir í sjúkraþjálfun með spútnik
genginu úr sagnfræði og guðfræðinemarnir...eru náttúrulega eins
og þeir eru Nei
nei – bara grín, fínasta fólk, en samt ólíkar týpur heldur en
við erum.
Ég fékk nett sjokk þegar
ég sá að hin nemendafélögin voru mætt með bækur og blómaskreytingar
til að gefa þeim í Landsbankanum í þakklætisskyni. Við að
sjálfsögðu ekki með neitt nema okkur sjálf. En eftir nokkur hvítvínsglös gat
ég alveg babblað okkur út úr því. Særún að sjálfsögðu upp á stól og
lamdi í glas til að þakka fyrir okkur...sagði bara að við hefðum
keypt rosa stóra og fallega blómaskreytingu...en hún færi bara svo
vel í stofunni minni heima þannig að ég hafi bara ákveðið að hafa
hana þar áfram, færi mun betur þar heldur á kaffistofunni í
bankanum! Þau voru
voða glöð með það – og svo sagði ég að þau fengju bankabók
nemendafélagsins í næstu viku (erum að gera samning við LÍ og
flytja bankaviðskipti okkar til þeirra) og það væri náttúrulega það
sem þau væru að sækjast eftir...peningarnir
okkar!!!
Eftir vísindaferðina var
haldið á Gauk á Stöng þar sem við vorum búin að plana Idol-partý á
breiðtjaldi, með bjór og tilheyrandi veitingum. Það sem við vissum ekki að það
var rokk-kvöld á neðri hæðinni sama kvöld. En það var allt í lagi
því það átti ekki að byrja fyrr en ellefu...það byrjaði ekki fyrr
en ellefu en HELVÍTIS SÁNDTÉKK! Það nefndi það enginn að einhver
fimm öskrandi bönd þyrftu að sándtékka allt
kvöldið! En þeir
hættu sem betur fer þegar idolið var nýbyrjað – en það voru
allir orðnir svo fullir að ég held að enginn hafi heyrt eitt
einasta lag í idolinu. Þannig að rokkararnir í neðra hefðu
getað sándtékkað lengur hefðu þeir viljað.
Svo var einhver
útlendingur með málningu og pensla á Gauknum, að mála tattoo á
fólk. Sagði að sá fyrsti sem fengi tattoo fengið það frítt – ég að
sjálfsögðu mætt fyrst í stólinn og hann málaði eitthvað drasl á
mig. Ég alsæl og fannst þetta æði. Svo fórum við út í snjókomuna og
þá varð listaverkið bara að einni stórri grænni klessu á bringunni
á mér...æðislegt!
Aldrei lærir maður af helvítis vitleysunni – sem betur fer var hann
ekki með alvöru tattoo, ég hefði örugglega fengið mér eitt slíkt og
vaknað upp við vondan draum á laugardaginn þegar viðbjóðurinn hefði
ekki náðst af!
En allavega – brilliant
kvöld, reyndar frekar fáir í bænum, en það var allt í lagi. Begga
vinkona kom og hitti mig á Gauknum, borgaði morð-fjár inn á
rokkarakvöldið!
Vonandi að hún hafi notið þess. Ég ætla ekkert að segja meira hérna
– en ég veit að ég er flörter af guðs náð...en ég sé ekki einu
sinni í hælana á Beggu í þeim efnum! Takk fyrir kvöldið Begga mín – og
aðrir sem nutu nærveru okkar um kvöldið 
»
27.02.2006 02:40:47 / saerun
Ég var á árshátíð FNÍS, félags
nema í sjúkraþjálfun í gær (laugard.kvöld), sem var bara
snilld. Heyrðu, það
var að sjálfsögðu happdrætti – sem ég og fleiri erum búin að
vera undanfarnar vikur að betla vinninga fyrir með góðum
árangri. Særún
ákvað nú, þegar búnir voru nokkrir drættir, að bjóða sig fram að
draga úr pottinum.
Í húfi var boðsmiði fyrir tvo í bláa lónið. Ég geri þetta mjög
fagmannlega, loka augunum, hræri vel í og dreg góðan miða
uppúr. Læt Ara hafa
miðann, ég enn með augun lokuð og bíð spennt. Svo las hann á miðann...,,Og
það er stelpa....hún er í stjórninni.....hún heitir
SÆRÚN”!!!!
Djöfullinn maður, ég dró mig sjálfa – hverjar eru líkurnar? Með
400 miða í pottinum! En ég tók alsæl við
vinningnum, en ákvað að fyrst þetta tókst svo vel að draga
aftur. Því ósanngjarnt að ég kæmi bara, drægi mig og færi svo.
Til að leyfa einhverjum öðrum að gleðjast líka. Aftur fer sama ferlið í gang.
Ég með augun lokuð, hræri í pottinum og vel góðan miða sem ég
rétti Ara. Fer svo bara í sætið mitt enda mínu hlutverki lokið í
bili. Ari byrjar að lesa: ,,og það er.......stelpa....á fjórða
ári.....og heitir SÆRÚN!!!” Ég hélt hann væri að
grínast í mér!
Þetta var mjög mjög pínlegt – að draga sjálfan sig út í
happdrætti fyrir framan 80 manns...tvisvar!!! En fékk góða vinnina, en vááá
hvað þetta var fyndið...og pínlegt samt að fara upp og taka við
vinningnum. Ákvað
að taka sénsinn og draga í þriðja sinn – og sem betur fer dró ég
einhvern annan, hjúkk maður.
En annars tókst árshátíðin með
eindæmum vel – eiginlega lukkaðist allt og allir voru alsælir. Við
fjórða árs nemar enn og einu sinni með yfirburða flottasta atriði
árshátíðarinnar. Vorum
með magadans og afró – hrikalega flott. Enda búin að eyða ófáum
klukkutímum upp í Hreyfigreiningu í salnum þar í
æfingar. Allir
rennandi sveittir og með blöðrur á fótunum við æfingar. En maður
uppsker eins og maður sáir, í skemmtiatriðunum eins og
öðru. Þriðja árið var
með eitthvert diss í sínu atriði – voru eitthvað að dissa okkur. En
greyin – komin á þriðja ár og hafa alltaf verið með lélegast
atriðið þá skilur maður vel að vera með diss út í okkur, biturleiki
punktur is. Alveg eins
og þeir fátæku eru oft með öfund og diss út í þá ríku, þá er þriðja
árið með öfund út í okkur. Svona er þetta bara. Þannig að eitt árið í viðbót voru
þau með lélegasta atriðið. En öfugt við oft áður, þá fá þau plús
fyrir viðleitnina – þau reyndu!
Ef þið ætlið að halda góða veislu, þá mæli ég með að þið kaupið
matinn hjá Ásgeiri í Veislur&vín og svo hið trítilóða
Diskótekið Dollý sér svo um að halda uppi
stuðinu. Ef
ykkur vantar gott fólk í veisluna, hafið þá samband og ég
skal pikka út nokkra stuðbolta sem ég skal lána
ykkur. Til dæmis
Kollu sem er með mér í bekk – algjör snillingur. Hún fékk
einmitt eina góða viðurkenningu á árshátíðinni. Mér fannst hún alveg eiga
skilið að fá viðurkenningu enda á hún besta múv ársins á
djamminu. Heyrðu, eftir vísindaferð í Vífilfell fórum við
einu sinni í partý heim til Tótu (á 3.ári). Allt í góðu með
það og svo allir í bæinn, Kolla að sjálfsögðu líka.
Daginn eftir fæ
ég eitt besta símtal sem ég hef fengið – mjög fyndið, en það
var einhvern veginn svona:
Særún: Halló
Kolla: Hæ, Kolla hérna
Særún: Nei sælar
Kolla: Hvað segirðu?
Særún: Bara nok
gott Kolla: Ekkert smá gaman í
gær!
Særún: Gaman – þetta var alveg
snilldarkvöld
Kolla: En
hérna....hérna....ummmm....ekki hérna......ekki veist þú hver á
Diesel buxurnar sem ég kom í heim????
Særún: (skellir upp úr)
– jú reyndar, veist þú
það ekki?
Kolla: Neeeeeei, eiginlega hef ekki
hugmynd, veit bara að ég á þær ekki
Særún: Þér fannst nefnilega ómögulegt
að fara í pilsi í bæinn og baðst Tótu um að lána þér buxur –
sem þú skelltir þér í og varst hin ánægðasta!
Kolla: Ertu að meina
þetta? Dísús –
þekki Tótu ekki neitt....ertu nokkuð með númerið
hennar?
....og so on and so on – þetta var
innihald samtalsins í aðalatriðum. En þetta var alveg snilld – ef
þetta er ekki eitthvað sem á að heiðra mann fyrir á árshátíð þá
veit ég ekki hvað.
En allavega – Kolla ef þú ert að
lesa........SNILLINGUR! p.s. veit þú fyrirgefur mér að setja þessa
sögu á bloggið....einhvern tímann 
»
23.02.2006 02:03:28 / saerun
Skrýtið hvernig maður tengir
tónlist við ákveðna tíma í lífinu, oftast nær ómeðvitað gerist
það að eitthvað lag minnir mann á eitthvað eða
einhvern.. Það sem hljómar á repeat
í græjunum mínum
(iPodinum góða) þessa dagana er Advertising Space með Robbie
Williams. Engin ástæða fyrir því önnur en mér finnst þetta
æðislegt lag. Ég fór samst að pæla hvort það lag muni
kannski alltaf minna mig á febrúar 2006 – held það án þess að
það sé eitthvað sem ég sé að ákveða eða skipuleggja.
Sagan segir að það sé um kónginn
Elvis. Má vel vera, ef maður les textann þá passar það mjög vel. En
sama hvort það er um Elvis eða hvað, þá finnst mér þetta æðislegt
lag. Ákvað að láta
textann fylgja.
Robbie Williams - Advertising
Space
There's no earthly
way of knowing,
What's in your heart when its' stopped going.
The whole world shook,
The storm was blowing through you.
Waiting for god,
To stop this.
I'm too young and,
And darkness.
Everyone around you was corrupted,
Say something.
There's no dignity in death,
To sell the world your last breath.
Your still fighting over everything you left,
OOOOOOOOOOHH.
I saw you standing at the gate,
When Marlon Brando passed away.
You had that look upon your face,
Advertising Space.
And no one learned from your mistakes,
The little profits go to waste.
All that's left in any case,
Is advertising space.
OOOOOOOHH.
Through your eyes the world was burning,
Please be gentle i'm still learning.
He seemed to say,
As you kept turning up.
They poisoned you with compromise,
At what point did you realise.
Everybody loves your life,
But you.
A special agent for the man,
Watergates and Vietnam.
No one really gave a damn,
D'ya think the sea i'm aiding???
I saw you standing at the gate,
When Marlon Brando passed away.
You had that look upon your face,
Advertising Space.
And no one learned from your mistakes,
The little profits go to waste.
All that's left in any case,
Is advertising space.
OOOOOOOHH.OOOOOOOOOH.
And no one learned from your mistakes,
The little profits go to waste.
All that's left in any case,
Is advertising space.
I've seen your doctor man she's cute,
I was scared but i wanted to.
Boy she looks a lot like you.
»
13.02.2006 00:36:48 / saerun
Þá er maður loksins búinn að halda upp á jólin í hinni stóru
Ameríku – fólk farið að halda að það væru bara alltaf jólin hjá
manni....það er ekki svo gott. En satt best að segja þá kom ég heim
6.jan þannig að ég var bara með venjuleg jól að lengd.
Ótrúlegt – heyrðu, stelpan pantar stundum vörur af
internetinu...svona kemur fyrir. Panta oft í gegnum amazon.com til
dæmis. Heyrðu, núna fyrir helgina fékk ég tölvupóst með
staðfestingu á pöntun minni af amazon og varan er á leiðinni til
mín. Eða til “mín” sem er heima hjá bróður mínum & co í USA
(læt oftast senda þangað). Nema hvað að ég var ekki að panta neitt!
Þetta er voða fínt Busy Ball Popper - sem er boltadót fyrir 1-2 ára
börn, kemur úr Toys´reUs – mjög fínt, en ég var ekki að panta
neitt. Mín fór inn á netið á svona “my account” þar sem ég get
skoðað pöntunina – jújú, þessi fína pöntun á þessu dóti, gerð
aðfaranótt föstudags um hálf tvöleytið – búið að setja á visakortið
mitt og er á leiðinni. Þvílík þjónusta – maður þarf ekki einu sinni
að panta sjálfur í dag, meiriháttar tækni! En sem betur fer kostaði
þetta bara $30 sem setur mig ekkert meira á hausinn en ég er nú
þegar, þannig að ég hef bara samband og skila þessu. En ef þetta
gerist einu sinni, má ég þá bara eiga von á þessu? Að af og til
sendi þeir mér óvæntan glaðning?
Ég er búin að panta allan andskotann á þessu neti og aldrei lent
í neinu – þannig að ég fer ekkert ofan af því að það sé mjög seif
að versla á netinu (á réttu stöðunum), en frekar óheppilegt þegar
eitthvað svona kemur upp. Samt pínu fyndið líka 
Jæja, læt þetta duga í bili. Vonandi að ákveðnar systur norðan
heiða verði ánægðar að jólapistillinn sé ekki lengur efst á
síðunni......og bæti tenglinu mínum jafnvel aftur inn – mér finnst
ég alveg eiga það skilið 
Tjá tjá
»
26.12.2005 05:00:58 / saerun
Jæja, þá er maður í hinni stóru Ameríku að halda upp á jólin. Búið að vera mjög notarlegt hingað til. Frændur mínir þrír frekar fjörugir...en það er bara gott, manni leiðist allavega ekki á meðan. Búin að skanna mollið með þetta helsta - þeir hjá Visa kunna mér bestu þakkir fyrir. En ótrúlegt - ég notaði fyrstu tvo dagana til
að kíkja í mollið og finna hvað ég ætlaði að gefa fólkinu mínu í jólagjöf, því ég var alltaf með elsta guttann með mér og gat því ekki keypt því átti m.a. eftir að kaupa hans gjöf. Á þollák fór ég svo í ein verlsunarleiðangur - átti ekki að taka neina stund því var búin að ákveða allt og ætlaði bara að skjótast og kaupa. Fyrst lá leið mín í Best Buy (risa raftækjabúð) þar sem ég ætlaði að kaupa ýmislegt. En það var full búð af fólki en engar vörur. Ekki til neinir iPodar, MP3
spilarar, digital myndavélar, DVD spilarar eða neitt - voru allar hillur
tómar bókstaflega. Hef aldrei séð þetta, alltaf allt til þarna og núna var bara tómt. Þannig að ég hljóp í Target (svipað og Hagkaup) til að ath hvort ég finndi philips dvd spilara sem
ég var að leita að - sama sagan þar, full búð af fólki en allir dvd spilarar og
þannig dót bara búið, finidó! Hélt að allt væri til í Ameríku og nóg af því! Þá fór ég heim og á netið - ætlaði bara að panta rétta spilarann á amazon og panta svona overnight
delivery, sem er rándýrt en þess virði þar sem klaufinn ég missti af öllu. Heyrðu, spilarinn sem ég ætlaði að kaupa að sjálfsögðu búinn þar. Þá ákvað ég að ath með iPoda og þannig, því ég þarf að kaupa 2 slíka.....allt uppselt! Ótrúlegt. Ég meina, það kemur engum á óvart að salan aukist fyrir jólin - hélt að þá væri bara nóg pantað inn og ekkert myndi klárast.....allavega ekki í júnæded steits of ameríka, því það er alltaf allt til hérna. En svona er þetta. En til að gera langa sögu stutta þá redduðust jólagjafirnar og allir voru
sáttir 
Annað sem er
mjög fyndið þegar maður spáir í það. Allt sem maður kemur með að heiman verður gulls ígildi. Ég tók með 4 dósir af malti og þær eru sparaðar út í eitt. Maður blandar jólablandið mun þynnra en vanalega, fær sér ekki óþarfa sopa og er bara ein kanna
með hverri máltíð. Þannig blanda ég 3 dósir af sunkist (appelsín) á móti einni malt - og allir
alsælir. Fengum
jólabland á þollák með hangikjötinu, svo í gær með hamborgarahryggnum - þá eru tvær dósir eftir. Fórum í mat í kvöld til annarra Íslendinga - drukkum að sjálfsögðu bara þeirra malt til að spara okkar! En þau koma til okkar á áramótunum og við stefnum að því að endurgjalda greiðann þá 
Vá - ég er búin að
skrifa núna margar margar
línur um malt! Ekki segja samt
að þetta sé useless information - þetta er mjög merkilegt og felur í sér
ákveðinn boðskap, jólaboðskap: Metið það
sem þið hafið, líka litlu hversdagslegu hlutina
því þeir eru ótrúlega mikilvægir þó maður fatti það ekki alltaf.
En gleðileg
jól - hafið það gott yfir hátíðina og gangið hægt um gleðinnar dyr inn í nýja árið!
»
05.12.2005 00:05:51 / saerun
Ein helgin enn búin – vá hvað þetta líður hratt. Bara 2 vikur
þar til ég fer út til USA! Fyrir þá sem ekki vita þá ætla ég að
fara út Bandaríkjanna og vera um jólin hjá bróður mínum&co.
Verður ábyggilega æði – segi ekki að það verði rólegt, því frændur
mínir eru algjörir skæruliðar og er sjaldan rólegheit í kringum þá.
En það verður hressandi að hitta þá – sakna þeirra geðveikt! Svo er
dollarinn náttúrulega svo hagstæður og aldrei að vita nema maður
finni sér eitthvað fallegt í mollinu....þeir hljóta að vera farnir
að sakna mín í Coralville Mall, hef ekkert komið allt þetta ár!
Enda var það á CNN News að Best Buy, Scheels (íþr.búð), Younkers og
fleiri stórir voru ekki með eins góða rekstrarafkomu árið 2005 eins
og undanfarin ár.......munar alveg um hvort ég mæti á svæðið eða
ekki! Allavega, þá verður æði að fara aðeins burt.....og svo er
náttúrulega alltaf gaman að koma aftur heim, sem betur fer 
Tónleikar 7.jan – voruð þið búin að heyra um þá? Þar verða
Björk, Damien Rice, Sigur Rós og fleiri......og ég Ég á meira að
segja miða í stúku! Miðasalan opnaði á netinu kl 10 sl. fimmtudag,
ég keypti miða kl 10:02 og kl 10:04 var uppselt í stúku! Kostaði
bara 3000kr miðinn, ótrúlegt! Hefðu ábyggilega getað selt miðann á
helmingi meira verði og samt selt upp á nokkrum mínútum. En gott
fyrir námsmenn eins og mig sem eru að fara út um jólin að hafa
þetta bara á spott prís.
Jæja – best að fara að koma sér í háttinn.........búin að vera
geðveikt dugleg í kvöld, gera skýrslu fyrir verknámið mitt, næ
aldrei að gera þær á vinnutíma þannig að verð að taka vinnuna með
mér heim. Bölvað álag! Ætlaði að vera dugleg alla helgina, fór
eitthvað fyrir lítið. En tók smá skorpu áðan þannig að þá getur
maður farið að sofa sáttur.
Góða nótt!
»
01.11.2005 09:30:30 / saerun
Langt síðan ég hef skrifað maður – dísús. En fer að bæta úr
því. Ákvað bara að
setja inn eina færslu til að fólk viti að ég
lifi....enn.
En
vá – sáuð þið fréttirnar í gær. Norðmaðurinn sem hálsbrotnaði í
fótboltaleik, rosalegt. Maður á ekkert endilega von á því að
hálsbrotna þegar maður skokkar inn á völlinn, það mesta sem
fótboltamenn eiga í hættu (oftast) eru krossbanda- eða
liðbandaslit, jafnvel fótbrot. Þá finnst þeim þeir ótrúlega
óheppnir, en að hálsbrotna og hljóta mænuskaða frá
hálsi. Allavega, þá
finnst mér þetta rosalegt.
En
þar fyrir utan, þá kíkti ég aðeins út um helgina, þá sjaldan sem að
maður lyftir sér upp.
Ætluðum út á föstudagskvöldið en þar sem var ógeðis veður þá endaði
það bara í pizzu og idol undir teppi. Allt of kalt til að standa í röð
niðri í bæ. En
laugardagurinn var tekinn með trompi í staðinn. Var mjög gaman. Enduðum á Celtic
Cross. Fyndið þar,
oftast ótrúlega gaman (mér fannst t.d. gaman á laugardaginn) en oft
skrýtið lið þar inni.
Stundum er bara venjulegt fólk en stundum er bara eitthvert
ógeðislið – sem var í miklum meirihluta á
laugard.kvöldið.
Kannski vegna þess að við fórum svo seint þangað, gæti verið – en
ég skemmti mér samt ferlega vel. Sunnudagurinn fór svo bara í mega þynnku
og leti - þannig á það að vera 
En
skrifa betur seinna – verð að halda áfram að gera
eitthvað 
bæbæ
»
14.10.2005 00:00:44 / saerun
Jæja – er að leggja lokahönd á
ritgerð sem á að skila á morgun. Alltaf léttir að skila
ritgerð, en það kemst samt upp í vana. Þessa dagana er eiginlega
frekar tilbreyting fólgin í því að skila ekki ritgerð,
skýrslu eða fyrirlestri einhvern dag!! En, er alveg að verða
búið. Á bara
eftir eina ritgerð, tvö próf í næstu viku og svo umsóknina
til vísindasiðanefndar fyrir Bs ritgerðina. Talandi um það, vá
maður hvað ég sat leiðinlega fyrirlestra í morgun – bara
heppin að sleppa heil frá þessu! Var mælt með að við færum á
fyrirlestra í morgun, þar sem formaður vísindasiðanefndar
fjallaði um reglurnar hvernig á að skila inn umsókn,
landlæknir um siðareglur og eitthvað. En dísús, þetta var sem
sagt fyrir okkur og læknanemana, en fyrirlesararnir báðir
læknar sem töluðu mikilvægi þess að hafa ekki rekjanleg
blóðsýni eða einhvers konar biopsiur, stofnfrumurannsóknir,
siðferði um rannsóknir á fósturvísum og fullt af hlutum sem
koma mér bara alls ekkert við eins og staðan er í
dag. Eftir tvo
tvöfalda fyrirlestra lét ég mig hverfa og sleppti þeim
þriðja, sem betur fer. Annars væri ég ekki hér
núna.
Svo er það Sirrý – sáuð þið
Sirrý í gær?
Mjög fínn þáttur og ömurlegt fyrir þessar systur sem eru með
taugahrörnunarsjúkdóm og eru að missa bæði sjón og heyrn,
mjög sorglegt.
En persónulega finnst mér Sirrý oft pínu
klaufaleg. Hún
spurði t.d. foreldra þessara stelpna um alla þá gleði sem
væri á heimilinu. Að hún hefði komið inn á
heimili þeirra og allir voru svo glaðir, hvernig þau bara
færu að þessu?
Nú, þau eru hamingjusöm fjölskylda og þau eiga þrjú yndisleg
börn! Þó svo að
tvær þeirra séu með hrörnunarsjúkdóm, sem er mjög sorglegt,
þá eru þær samt sem áður börn og börnin manns veita manni
alltaf gleði!
Hún talaði svolítið eins og þau höfðu misst tvö
börn! Það er
ekki svo, þær eiga framtíð fyrir sér þessar stelpur, þó svo
að hún verði kannski ekki alveg eins og þær eða fjölskyldan
hafði óskað sér í upphafi. Svo spurði Sirrý hvers þau
óskuðu sér um framtíð stelpnanna. Nú, hvers óskar maður
börnunum sínum?
Hlýtur að vera að þau verði hamingjusöm! Æi, fínn þáttur og
Sirrý fjallar oft um mjög skemmtileg málefni sem þarft er að
koma fram á sjónarsviðið með og þátturinn í gær engin
undantekning. En
mér finnst hún stundum svolítið klaufaleg. Því þó svo að einhver eigi
fatlað barn, hvort sem það fæðist fatlað eða ekki, þá er
barnið manns alltaf gullmolinn í lífi manns. Fötluð börn, hvort sem þau
eru blind, heyrnarlaus eða glíma við aðra fötlun, veita
foreldrum sínum ekki minni gleði en þau sem teljast
heilbrigð.
Stundum reyna þau kannski á þolrifin, en það gera öll börn.
En jæja – best að fara í háttinn ef
ég ætla að vera mætt í skólann og tilbúin að halda fyrirlestur á
slaginu 8:15. Þó ég sé
mikill morgunhani að eðlisfari og vakni ætíð eldsnemma með bros á
vör, þá finnst mér þetta heldur snemmt.
»
09.10.2005 14:40:18 / saerun
Í dag er planið að gera ritgerð,
en vá hvað ég er ekki að nenna því samt. Langar að taka
leti-sunnudag...en það er víst ekki í boði. Er reyndar að horfa núna á
leik Vals og þýska liðsins Potsdam. Áfram Valur! Held að ég taki því bara
rólega yfir leiknum og spýti svo í lófana og fer að
læra. Annars er
þetta búið að vera brilliant helgi, ekkert djamm, engin þynnka
og bara ferlega fínt. Ágætis tilbreyting frá
þynnkuhelgunum sem eru búnar að vera ansi margar
undanfarið.
Var að setja inn myndir (um daginn) -
aðallega frá því um daginn þegar nýnemar í sjúkraþjálfun voru
vígðir inn í deildina með viðeigandi hætti 
»
27.09.2005 16:31:25 / saerun
Nu er jeg på Island igen –
úpps, muna eftir að skipta yfir í íslenskuna. En jæja, þá er maður kominn
á klakann aftur eftir vel heppnaða helgi í Kóngsins
Köben. Fórum
þangað á fimmtudaginn. Var alveg æðisleg
ferð, geggjað veður og allt eins og það á að
vera. Ekki
skemmdi fyrir að það var um 20° hiti allan tímann – fínn hiti
til að sitja úti á Ráðhústorginu, Strikinu eða einhversstaðar
og sötra bjór.
Ég fór sem sagt í systraferð plús ein mamma (mamman
mín). Ég og
systir mín ákváðum að skella okkur í helgarferð til Köben og
þegar mamma frétti það fannst henni náttúrulega upplagt að
hún kæmi með – mamma að fara út með stelpunum sínum
J
En í rauninni var ekkert eins
og maður væri í útlöndum, fyrir utan veðrið, því það voru
fleiri Íslendingar en hérna liggur við. Maður verður alveg að
passa sig, hvað maður segir og ekki gera grín að
fólki....upphátt. En fyndið samt, maður getur
setið (með bjór) og spottað út hverjir eru Íslendingar og
hverjir ekki. Einhvern veginn sér maður það alltaf. Kannski
vegna þess að við erum alltaf með flestu innkaupapokana

En þetta var allavega snilld.
Gaman að hafa mömmu líka með, gefur þessu ákveðið
skemmtanagildi plús það að þá fær visakortið mitt stundum smá
pásu En það
er ekki logið upp á hana. Ókey, hvaða fylgikvillar
eru oft með svona helgarferðum? Jú sumir fá hælsæri, sem er
eðlilegt svo sem. Nei, ekki mamma mín. Hún
tognaði aftan á læri!!! Já ekki hlæja, þetta er
ekkert grín – getur komið fyrir á bestu bæjum. En málið er með hana mömmu
mína, hún er stundum svolítið ör. Ekkert mikið, svona
pínu. Til dæmis
þegar maður er á ferðinni, hvort sem það er fótgangandi eða á
bíl, þá ef hún sér grænt ljós þá spýtir hún í til að ná því –
bara eins og ef hún missi af því þá komi aldrei aftur grænt
ljós! En
allavega, á sunnudaginn þá vorum við á röltinu og vorum að
koma niður að Nýhöfn. Er grænn kall en við ekki
alveg komnar að götunni þannig að ekki séns að við næðum
græna kallinum. Jú, mamma ætlaði sko að ná þessum – gæti
verið síðasti græni kallinn þann daginn. Þannig að hún gekk röskar
og út á götuna, þá var komið rautt og hún á miðri
götunni. Kom
bíll á fullu og flautaði, mamma hentist í loftköstum yfir og
upp á gangstétt!
Mjög fyndið að sjá – en hvað græddi hún samt á þessu, þurfti
hvort sem var að bíða eftir okkur Boggu því við vorum ennþá
hinum megin. En þetta skipti öllu máli. Kom svo í ljós að hún tók
svo snarpan sprett að hún var að drepast aftan í
lærinu! Týpískar
aðstæður fyrir aftanlæristognanir eru einmitt stuttir
sprettir, algengt hjá spretthlaupurum og fótboltamönnum þegar
þeir eru á sprettinum eða taka af stað ....og svo hjá mömmu
minni við að hlaupa yfir umferðargötu á rauðu
ljósi!!! Var
samt mjög fyndið og týpískt fyrir hana að lenda í.
En jæja - verð að drífa
mig. Er að fara
út í háskólarækt...ekki til að æfa, neeeei, er að fara að
leiðbeina í tækjasalnum þar. Tókum það að okkur í
fjáröflun og skiptumst á að vera þar.
En allavega bottom line úr
pistli dagsins er: Mæli með að allir skelli sér eina helgi út
á haustin, farið samt varlega...........og mamma ég elska þig

Bæbæ
p.s. Ef þið hittið mömmu mína,
þá hafið þið ekki hugmynd um aftanlæristognunina

»
27.09.2005 16:09:32 / saerun
Hæbb - Solla vinkona klukkaði mig og þá á ég að koma með 5
staðreyndir um mig...maður verður nú að standa við það
1. Ég er nemi í sjúkraþjálfun, er að útskrifast í vor (jibbí)
2. Ég á Ford Focus
3. Ég á bestu vini í heimi
4. Ég hata að strauja þvott, er mjög léleg í því - er með ör eftir
brunasár á báðum upphandleggjum eftir helv..straujárnið.
5. Allt er vænt sem vel er grænt....uppáhalds liðin mín eru
Völsungur, Breiðablik og Liverpool (hafa stundum verið í grænum
varabúningum, það telur  )
Ég verð nú að halda keðjunni gangandi og láta fleiri koma með
staðreyndir um sig... ég ætla að klukka systurnar Hauksdætur, Tinnu
og Tomma. Drífið nú í að koma með 5 staðreyndir um
ykkur
Tjá tjá
»
12.09.2005 17:00:58 / saerun
Í gær var 11.september, sem er alveg rökrétt þar sem að í dag er
12.september. En fyndið, það er sama hvern maður spyr, það vita
allir nákvæmlega hvar þeir voru 11.september 2001 þegar
hryðjuverkin voru í USA. Ég til dæmis, var í Iowa, USA. Klukkan
rúmlega átta og litli stubburinn, sem ég var að passa ennþá
sofandi. Særún bara í rólegheitunum að horfa á Beverly Hills
maraþon á FX stöðinni (sjónvarpsstöð framhaldsþáttanna). Mín hin
rólegasta. Hringir síminn, er það þá Siggi landlæknir, sem sagt
pabbi konunnar sem ég var að passa fyrir hrikalega æstur hvort ég
sé ekki að horfa, hvort ég sé ekki að horfa! Ég bara "Ha? Jú á
Beverly!" "Nei nei," heyrðist þá hinu megin, "það er búið að bomba
allt -World Trade Center, Pentagon og bara allt í vitleysu." Og þá
skipti mín yfir á CNN og sá hvað var að gerast. Vá þetta var samt
alveg rosalegt. Pældu að vera bara á röltinu í vinnuna á Manhattan
og sjá bara flugvél fljúga inn í turnana og sprengja þá! Þetta var
allavega rosalegt.
En jæja, þá er ég búin að minnast 11.september.
En af skemmtilegri hlutum. Síðan ég skrifaði síðast inn þá eru
Blikarnir búnir að vinna bæði Íslands- og
Bikarmeistaratitilinn..heyr heyr. Og sjúkraþjálfarinn þeirra í
aðalhlutverki! En þetta er búið að vera geðveikt sumar hjá þeim og
ekkert smá gaman að vera með þeim....og fá borgað fyrir það
(híhí).
En ég var að lesa Blaðið áðan, sem er ekki frásögu færandi, nema
hvað. FH strákarnir fengu íslandsmeistaratitilinn afhendan í gær og
óska ég þeim til hamingju með það. En þeir voru á risa mynd á
forsíðunni og annarri á íþróttasíðunum en svo var smá klausa inni á
íþróttasíðunum sem sagði frá því að Breiðabliksstelpurnar hefðu
orðið bikarmeistarar á laugardaginn og unnið KR 4-0! Kommon, frekar
lásí blaðamennska. Veit svo sem ekki alveg hvort það var búið að
birta mynd af þeim í gær - en kemur Blaðið nokkuð út á sunnudögum?
Held ekki. Þannig að þetta var, eftir því sem ég best veit, eina
fréttin sem þeir birtu um bikarúrslitin hjá stelpunum. Sökkar. En
maður er svo sem ekkert að pirra sig á því - en þetta er bara svo
týpískt. Og pæliði, ekki ein mynd af sjúkraþjálfaranum!!!!
En jæja - gott í bili. Best að halda áfram að lesa þessa
aðferðarfræði, sem nota bene getur drepið mann bara við
tilhugsunina.
Tjá tjá
»
29.08.2005 19:49:33 / saerun
Þá er kominn mánudagur...aftur. Ég sem ætlaði að gera svo
margt um helgina, en hvað gerði Særún. Jú Særún var bara að leika
sér og fór á djammið...aftur! Ætlaði kannski að fara með
Reykjalundargenginu í gönguferð um helgina en um hádegi á föstudag
lét ég vita að ég ætlaði að klikka. Sá það bara að ég yrði nú
bara að nota helgina í að læra og vera dugleg - en eins og með svo
margt sem ég plana þá fór það fyrir lítið. Lærði hvorki né
var neitt dugleg, nema að drekka öl og þræða skemmtistaði
borgarinnar. En ég skemmti mér samt konunglega og þá er
tilgangnum náð. Þetta hálendi fer ekki neitt þó svo ég labbi
ekki um það núna í sumar. En annað má nú segja um skemmtistaðina,
þeir eru nefnilega alltaf að koma og fara. Því má eiginlega
segja að þessi helgi, eins og sumarið allt, hafi snúist um
forgangsröðun. Gera núna það sem ég get kannski ekki gert
seinna. Ég get alltaf labbað seinna á fjöll, það er ekki
vandamálið.
En nóg samt um að réttlæta lifnaðarháttinn á mér - that´s just me,
I´m a punk.
En annars er skólinn bara byrjaður á fullu, vika búin. Alltaf
fínt að byrja í skólanum. En ótrúlegt samt hvað er erfitt að vakna
og mæta í skólann klukkan 8 á morgnanna, setjast niður og hlusta á
aðra tala. Minnsta málið að vakna og fara í vinnu, þá verður
maður ekkert þreyttur - en að setjast niður og eiga að hlusta og
halda sér vakandi...vá, of mikið fyrir mig. Byrjaði fyrsta
daginn náttúrulega á því að sofna í öllum fyrirlestrum held ég -
svona rólegheit eru bara ekki fyrir mig. Svo heldur systir
mín að það sé upplagt fyrir okkur að fara í ræktina bara hálf sjö,
fyrir skóla. Sénsinn bensinn. Gerði það nokkrum sinnum þegar
ég var á Akureyri í MA. Þá plataði Solla mig stundum í að fara í
spinning hálf sjö. Jú jú, fínt að vakna og fara í spinning.
Svo fór maður í sturtu og náði meira að segja morgunmat á vistinni
og mætti ferskur eins og íþróttaálfurinn í skólann. En svona níu
hálf tíu, þá var Særún orðin þreytt og ef hún er þreytt þá
sofnar hún! Þannig að ég held að þetta sé ekkert of
sniðugt.
En jæja - orðið gott í bili....OC er að byrja!
»
Síður: 1 2
|
|